Hvar er Skeiða- og Gnúpverjahreppur? Hreppurinn liggur austast í Árnessýslu ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóa í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Atvinnuvegir eru landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, auk iðn- og verslunarstarfa en ferðaþjónusta fer sívaxandi og útlit fyrir að hún muni vaxa töluvert á allra næstu árum með tilkomu Fjallabaðanna í Þjórsárdal. Náttúrufegurð er mikil og eru nokkrar þekktar náttúruperlur í hreppnum svo sem Háifoss, Hjálparfoss, Þjórsárdalur, Stöng, Gjáin, Gaukshöfði og Vörðufell. Í hreppnum er félagslíf og mannlíf, blómlegt. Tvær kirkjusóknir eru í sveitarfélaginu; Ólafsvallasókn og Stóra-Núpssókn. ÁrnesÍbúafjöldi í Árneshverfinu er á milli 50-100 manns. Í sveitarfélaginu öllu búa rúmlega 600 manns. Grunnskóli sveitarfélagsins er staðsettur í hverfinu, ásamt sundlaug, félagsheimili og skrifstofu sveitarfélagsins. Matvöruverslun, tjaldsvæði og veitingastaðurinn Brytinn í Félagsheimilinu. Þjórsárskóli í Árnesi er grunnskóli frá 1. - 7. bekk. Nememdur koma með skólabílum og fá morgunhressingu og hádegisverð í skólanum á kostnaðarverði. Einnig er skólavistun í boði fyrir yngri bekki. Selfoss er í um 40 km fjarlægð frá Árnesi og Flúðir í um 20 km fjarlægð. Reykjavík er í um 100 km fjarlægð. BrautarholtLeikskóli sveitarfélagsins er Leikholt í Brautarholti. Þar komast börn í sveitarfélaginu í vistun frá 1 árs aldri og er leikskólagjöldum stillt mjög í hóf. Í Brautarholtshverfi eru ekki lausar lóðir sem stendur en búið er að skipuleggja allnokkra fjölgun á lóðum þar. Í Brautarholti er starfræktur leikskóli sveitarfélagsins, þar er einnig sundlaug og gistiþjónusta. Vegalengd að Selfossi er um 26 km og um 20 km að Flúðum. Flúðaskóli á Flúðum er grunnskóli frá 1. - 10 bekk. Nemendum í 8- 10. bekk úr Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ekið þangað daglega ( 20 km.) og er hádegisverður í skólanum. LjósleiðariLjósleiðari hefur verið lagður um allt sveitarfélagið og greiðir sveitarfélagið inntökugjald hans niður um 150.000 kr. pr tengingu. Hitaveita er aðgengileg um mest allt sveitarfélagið. Lagningu bundins slitlags á götur og gangstéttar lauk að mestu í Árnes- og Brautarholtshverfum lauk sumarið 2019. Í Brautarholti var byggð fullkomin skólphreinsistöð árið 2017. Öflugt mannlíf er í sveitarfélaginu, fögur náttúra og góðar samgöngur. Tvær sundlaugar eru í sveitarfélaginu. Skeiðalaug 16 3/4 m löng með gufubaði og heitum potti í Brautarholti og Neslaug, áttstrend laug 12,5 m að lengd með heitum potti í byggðakjarna í Árnesi. Auk þess er vel útbúið tjaldsvæði með rafmagni í Árnesi. Þá er tjaldsvæði á Sandártungu í Þjórsárdal - en þar er ekki rafmagn. Sveitarfélagið greiðir tómstundastyrk fyrir hvert barn til foreldra þeirra á aldrinum 6 -18 ára að upphæð. kr.80.000,- á ársgrundvelli árið 2022 gegn framvísun kvittana frá viðurkenndum aðilum er sjá um íþrótta - og tómstastarf. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Skeiða og Gnúpverjahrepps í síma 486-6100 netfang skeidgnup@skeidgnup.is (责任编辑:) |